Home

Brynkan gone grown-up...

  • 8. Júl. 2009 at 10:30 PM
foxí
Jebbsadeisí! Orlofið varði ekki lengi... Var ráðin sem "sérfræðingur" (úhúú hvað ég elska þetta starfsheiti) í mjög spennandi verkefni á vegum HR. Reyndar tímabundið en það kaupir mér tíma og REYNSLU til að fá alveg ótrúlega spennandi starf í framhaldi af því...may the force be with me!

En draumur minn rættist svo sannarlega um að fá starf þar sem menntun mín nýtist og ég get lært endalaust...draumur í aspasdós!

Knúz í kaf frá da expertízzzzzz

Af Brynku í orlofi...

  • 6. Jún. 2009 at 11:38 PM
foxí

Jeddúddamía hvað er langt síðan ég hef skrifað hérna... Það sem hefur á daga mína drifið undanfarna mánuði er í stuttu máli það að...

  • Ég skilaði ritgerðinni minni og fékk sexí einkunn fyrir hana
  • Ég er orðinn meistarastrumpur með MS gráðu í stjórnun og stefnumótun (eða öllu heldur þann 20.júní)
  • Ég er komin í ORLOF (a.k.a atvinnuleysi)
  • Ég er búin að sækja um tvöhundruðogsextíu vinnur
  • Ég er búin að Bree-ast alveg fullt...mála handriðið, hugsa (ekki framkvæma) um hvaða plöntur eigi að vera í garðinum (er að vonast til þess að búið sé að létta "the killing plants" bölvuninni af mér), kaupa garðhanska (með blómum á), baka, skrifa skipulagða og útúrpælda matseðla fyrir vikuna og allt sem réttlætir að ég sé í "orlofi" 
Það sem er aftur á móti framundan er...
  • Útskrift og taumlaus gleði
  • Glæsilegur og ný-tyrfður garður (ég er ekkert að grínast með að það eru gröfur í garðinum mínum og allt á milljón)
  • Pallur til að fullkomna orlofið mitt
  • Að klára að prjóna lopapeysuna hans Helga (sem ég er búin að taka tvö ár í)
  • Lestur fullt af bóka...Annars virðist  meistaratitillinn e-ð hafa stigið mér til höfuðs...fattaði það þegar ég ætlaði að draga e-h spennandi bók upp úr bókasafnspokanum að þær heita allar einhverjum stórfurðulegum stefnumótunarnöfnum...t.d. "differentiate or die" eða "strategy and success"...glötuð...
  • Mæta í alla saumaklúbbana sem ég er víst meðlimur í (en hef ekki haft tíma til að mæta í síðan 1739)
  • Spontant hittingar með öllu fólkinu sem mér þykir vænt um en hitti allt of sjaldan
  • FÁ EINHVERJA ÓGEÐSLEGA SPENNANDI VINNU OG LÁTA LJÓS MITT SKÍNA!!!!!
Jebbs...that's about it...Brynkan í orlofi out

Hallelúja, dauði og djöfull...

  • 17. Apr. 2009 at 12:10 AM
foxí
Hallelúja yfir því að ég var að senda MS ritgerðina inn til yfirlestrar en DAUÐI OG DJÖFULL yfir því að Facebook síðan mín er læst af því ég er búin að slá svo oft inn vitlaust password!!!!!!!!!

Af öllum þeim gerviþörfum sem ég hef talið mér trú um að þurfa er Facebook leysið að gera mig GRÁHÆRÐA!!!!!!!

En hey...hver veit nema að ég taki frekar til við að tvista og blogga í staðinn??!!!

Af kvíðakasti og Gogga gírlausa...

  • 13. Jan. 2009 at 12:09 AM
foxí
Á morgun fer ég í síðasta prófið mitt í þessu M.Sc. námi...fáránlega skrýtin tilfinning...ekki frá því að hún sé tómleg og pínu scary...

Get samt ekki sagt að ég hafi svitnað mikið í þessu námi...svitnaði kannski nóg á Bif fyrir allan peninginn...kannski er maður bara kominn í ágætis æfingu...kannski er maður bara orðinn sonna ligeglad í seinnitíð...kannski hefur *skólastressið* bara fallið í skuggann á öllu hinu góða sem hefur gerst í lífi mínu á þessum tíma...who knows...

Fyndið að rifja upp stressið fyrir fyrsta háskólaprófið mitt samt í þessu samhengi...gleymi því aldrei...rekstrarhagfræði hjá Snæfríði, haustið 2005.

Tæpum fjórum árum (og þrjúþúsund prófum) síðar er ég bara nett á því fyrir prófið á morgun...Hætti að læra í dag kl.4 og bara nokkuð slök... Fannst þetta vera komið bara! HVAÐ ER ÞAÐ??? Allt of cocky og fríkí...veitir ekki á gott!

En eins og þið sjáið er öll stóísk ró undirritaðrar horfin á braut og núna tólf mínútum eftir miðnætti fékk ég allt í einu kvíðakast og er að skíta í brækurnar. Á nú samt eftir að sakna þessa klassíska kvíðakasts... Og mikið asskoti verður skrýtið að útskrifast í júní...finnst ég hafa setið í útskriftinni á Bif í gær...haustið 2007...wierd svo ekki sé meira sagt!

-Skál annars fyrir Georgi Bjarnfreðarsyni (sem hefur gert það ómögulegt fyrir mig að útskýra fyrir fólki hvað ég er að gera...það er að skrifa m***********...

Back to the future...

  • 9. Jan. 2009 at 5:11 PM
foxí
Déjavú í gangi hérna...

Sit á Hressó að læra (sem er nú ekki saga til næstu bæjar) fyrir próf á þriðjudaginn (sem er by the way síðast prófið mitt í þessu mastersnámi)...trallallla...nema hvað...dagurinn og kvöldið er að koma fullkomlega á óvart og planned-by-the-minute eins og í gamladaga...Say no more...

Enníveiz...út af keðjuverkandi atburðum er ég óháður stúdent og kærasta í kvöld. Börnin vel geymd hjá feðrum eða ömmum og ég sit sum sé með kennibækurnar og hvítvínsglas í hendi (very cosmopolitan) að bíða eftir unnusta mínum. Kvöldið: Fullkomlega óplanað, nema að því leyti að því verður eytt í besta félagsskap sem hugsast gæti! Vhíííí
Knúz frá mizzí little Cosmo chick

Diamonds are a girls best friend...

  • 27. Des. 2008 at 12:20 PM
foxí
Jólin nærri því búin og Jesús Pétur í allan vetur hvað þetta voru góð jól. Kósíheit par excellans. Jólakortin gleymdust eitthvað í ár þannig að hér er svona næstum því jólakort...


Já...þó ég sé nú mikið jólabarn þá held ég að jólin 2008 eigi vinninginn...ekki nóg með almenn yndislegheit heldur ákvað Sætasti að koma Kjéddlu sinni á óvart á aðfangadagskvöld og skella sér á skeljarnar...jebbsadeizí...trúlofuð takk förer. Gifting tilkynnt síðar...

Knúz og kossar

Já nei nei nei NEI....

  • 20. Des. 2008 at 3:07 AM
foxí
Ég gleymi aldri mómentinu þegar ég heyrði fyrst í The Cure...Árið var 1986...ég var 9 ára og Rás 2 var mest hipp og kúl í heimi. Ég átti geðveikan rauðan gettóblaster og hlustaði ALLTAF á "Lög unga fólksins"...það var heilagt. Þá var hurðinni læst og sett á skiltið góða; "Vinsamlega bankið!"

Upphafsstef þáttarins var "Close to me" með The Cure...algjör snilld. Ég vissi ekki hvaða lag þetta var ...eða hvaða hljómsveit þetta var...þannig að það endaði með því að ég tók upp símtólið (9 ára gömul) og hringdi niður í útvarp. Fékk samband við Vernharð Linnet og spurði hann einfaldlega hvaða lag þetta væri...er viss um að hann hafði nett gaman að þessari fyrirspurn. 9 ára trippið ég.

Þetta var uppljómun og frelsun...hef aldrei verið söm síðan. Í mörg ár hlustaði ég meira á The Cure heldur en mömmu mína... Ég gerði samning við sjálfa mig (sem ég stóð við lengi framan af) um að eiga ekki kærasta nema að þeir væru yfirlýstir aðdáendur Cure...Ég sá bara ekki fram á að eiga neitt sameiginlegt með þeim nema svo væri...

En áðan fékk ég sjokk...Kóngurinn (Robert Smith) er orðinn feitur og súr...en samt í sama átfittinu. Hvað er það??!! Sá einhver Jay Leno???!!! Ég dó úr fúlindum...af hverju mátti ekki bara Smith-inn fá að vera eins í minningunni???!!! Mátti hann ekki bara stöðva í tíma?

ÞAÐ ER EKKI Í BOÐI AÐ HALDA ÁFRAM AÐ GANGA UM Í ÞRÖNGUM LEÐURBUXUM OG MÁLA SIG MEÐ EYE-LINER ÞEGAR MAÐUR ER KOMINN Á GRUND! Nei...sko...ég meina...ef ég tek 360 gráður vinkilinn á þetta og verð voða umburðalynd þá er auðvitað stórkostlegt að maðurinn sé ennþá að afneita "norm-inu" og allt það...en svona ef ég hugsa ekkert um börnin í Eþíópíu og bara um rassgatið á sjálfri mér...þá finnst mér þetta vont...vil bara hafa Smith-inn eins og hann var...frosinn í minningunni....ekki sona...


Brynkan brjáluð
foxí
Baðkarið hefur vakið mikla lukku síðan það var sett í gagnið í mánuðinum...



Smá af systrunum sem gera ekki annað en að bræða karlpeninginn á heimilinu (og þó víða væri leitað)...



Annars vex litli hnoðrinn okkar og dafnar eins og blóm í eggi...Eins og sést er hún umvafin ást og aðdáun frá systkinum sínum...Ekki slæmt að eiga svona stór og dugleg systkini þegar maður er lítill strumpur!





Gott að geta haldið í stóra brósa...


Ahhhh...ég elska þennan brósa minn...


Sooo er ég sko líka pabbastelpa...


Svo eru bara jólin að koma! Gærkvöldið var tekið í að skreyta jólatréið...



Tatadaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa...


Jæja...ætla að halda áfram að njóta þess að vera komin í jólafríííííííí
Knúz á línuna

Álfar?

  • 17. Des. 2008 at 5:20 PM
foxí
http://www.youtube.com/watch?v=OIMGPlH4XPo&eurl=

Grenjaði úr hlátri um leið og ég fékk brjálaðan kjánahroll...tékkit...
Ps. Spurning um að hafa þessa menn á launum við að kynna land og þjóð?

Gleði Gleði Gleði...

  • 16. Des. 2008 at 11:22 AM
foxí
B-Ú-I-N með ógeðsprófið! Vhúhúúúú!!!!!!

Framundan...
-Kaupa jólatré
-Skreyta jólatré
-Jólast (með stóru J-i)
-Knúsast

Vhííííi hvað ég ætla að hafa það gott næstu daga...

Er stödd í helvíti...

  • 15. Des. 2008 at 8:40 PM
foxí
HVER setur mann í sólarhringslangt próf í hagfræði??!! Nei...ég bara spyr!

12 tímar eftir...

Af home improvement og cable guy...

  • 9. Des. 2008 at 3:46 PM
foxí
Sit heima að bíða eftir gríslingunum sem eru að koma frá pabba sínum innan skamms...vhííí... Annars er allt gott að frétta...kláraði SÍÐASTA verkefnið mitt í M.Sc. náminu á sunnudaginn. Mig langaði að taka gamla góða maurætudansinn okkar Sessýar eftir á...nú eða geðveikislegu hrópin okkar Sæþórs úr Cable-guy: Braaaaaaaaaaa Braaaaaaaaaaaa Braaaaaaaaaaaaa

Annars er allt á fullu hérna í "home improvement"...baðherbergið er að verða svo gott sem full-flísalagt og man oh man hvað það er fallegt. Alveg þess virði að bíða allan þennan tíma! Annars er Miðtúnið okkar orðið full skreytt og það er ekki minimalisminn sem ræður ríkjum hér í jólagleðinni (frekar en fyrri daginn). Held ég sé búin að baka 9 sortir...sem klárast jafnóðum...elska það. Er með einhver bóndakonu-húsmóðursgen sem veita mér (svo gott sem) fullnægingu við að metta gesti og gangandi af veitingum...hvaða pervertismi er það?!

Annars er ég víst líka í prófum...þó það fari lítið fyrir því...einhvernveginn heillar allt mig meira þessa daganna...jafnvel að þvo þvott! En samt finnst mér voða gott að hafa eitthvað project til að leysa og klára...þessi próf eru náttla bara verkefni sem þarf að leysa og klára. Kvíð dáldið fyrir því þegar það er búið. Hingað til hefur fæðingarorlofið mitt farið í próflestur (í sumar), 3 lokapróf og fjölmörg verkefni. Samt hefur þetta bara verið svona bónus í líf mitt...ekkert íþyngjandi. Gæti ekki hugsað mér lífið án þess eiginlega. Er búin með heimavinnandi pakkann þegar ég hef engin önnur verkefni en þau sem lúta að litlum stubbum og heimilinu. Ekki misskilja mig...það er yndislegt að sinna þessum gríslingum...en ég verð bara að játa að ég þarf líka eitthvað annað...svoleiðis er það bara.

Enníveiz...litla mús er byrjuð að hjala í rúminu...sem sé vöknuð...ætla að fara að stela mér knúzi...
Annars bara knúz á línuna!

Krúttsprengjuvinkonur...

  • 30. Nóv. 2008 at 9:04 PM
foxí
Ómótstæðilegt móment...hérna eru Gerður Tinna og Salka Elín (Tobbu og Sæþórsdóttir) að bonda...við mömmurnar erum allavega búnar að ákveða að þær verða bestu vinkonur eins og mæðurnar....

Gerður Tinna er strax orðin hnupplótt...leist svo assgoti vel á dudduna hennar Sölku...


Mmmm...


Got it...


Hanging out...



Rúsínurazzzzgöt með súkkulaði I tell ya!

Og við sjáum mynd...

  • 25. Nóv. 2008 at 2:56 PM
foxí
Smá myndasería frá síðustu dögum...

Prinsessa Thalía varð fimm ára í síðustu viku...






Annars gerðust þau stórtíðindi nú á dögunum að mútterin á heimilinu ákvað að gerast blondína aftur...hef ekki verið ljóshærð síðan ég ákvað að raka af mér hárið hér um árið...


Svo aðeins af krúttsprengjunni á heimilinu...


Uppáhaldið þessa daganna eru tásslur í matinn...enda ekkert eðlilega sætar tásslur þar á ferð!


Jájá...með skapið hennar mömmslu sinnar...


En með fallegu augun hans pabba síns...






Annars bara knúz fyrir allt klinkið!

Um helgina...

  • 23. Nóv. 2008 at 3:58 PM
foxí
-skreytti ég húsið með tilheyrandi jólastemmningu
-tókst mér að fá Helga til að gerast Chevy Chase og setja úti-seríu á húsið...vei ó vei
-drakk ég slatta af rauðvíni...mmmmm
-knúsaði ég kjaddlinn fullt...enda flestir ungarnir ekki í hreiðrinu;-)
-gerði ég fullt af konfekti (með tilheyrandi smakki)
-lærði ég alveg nóg til að hafa ekkert samviskubit
-flísalagði Helgi baðherbergisgólfið...vei ó vei
-er ég að fara á Sigurrósartónleika í kvöld (sunnudag)...veiiiii ó veiiiiii

Brynkan sem getur ekki hugsað sér betri helgi
foxí
Ég er í bullandi stemmningu...finn það í mallakútnum alveg...er orðin svo ótrúlega ánægð með hreiðrið mitt og get ekki beðið eftir því að eyða öðrum jólum hér. Það er alveg afrek í mínu lífi að halda jólin á sama stað tvisvar...undanfarin ár hafa einkennst af miklum flutningum og rótleysi (og taumlausri gleði náttla)...þess vegna fíla ég þetta í botn. Finnst æði að ganga að jólaskrautinu vísu niðr'í kjallara, vita hvert ég ætla að setja hvað og svona...mmm...get ekki beðið!

Tók mig til og bakaði piparkökur seinni partinn í dag þegar farið var að rökkva. Lyktin var alveg keppnis...mmm...

Skellti jólalögum á fóninn með Villa Vill og Ellý og fór alveg 25 ár til baka...var allt í einu orðin fimm ára og stödd í eldhúsinu hennar ömmu að baka piparkökur...algjörir töfrar... Good times.

Á milli þess sem við amma skelltum bökunarplötum í ofninn tókum við einn og einn dans saman. Þá skellti ég mér alltaf ofan á "töfflurnar" hennar ömmu (a.k.a. inniskó) og dansaði á tásunum hennar...mmm...good times. Allt var svo gott í eldhúsinu hjá ömmu...magic...sérstaklega þegar hún var að baka. Ekkert hefði getað fokkað því upp...ekki einu sinni kreppa...

Og ég er ákveðin í því að láta ekki heldur þessa helvítis k******* skemma þessi jól...ekki séns. Það verður bara ennþá meiri ást, kærleikur (og smá naumhyggja)...þemað verður bara *knúz* og kózíheit par excellands....grrrr...get ekki beðið eftir að skreyta. Eitthvað segir mér að ég geti ekki beðið til 1.des...

Knúz og kózíheit fyrir allan peninginn

Ég er glöð af því...

  • 6. Nóv. 2008 at 12:12 AM
foxí
-Ég sit ein heima í rökkrinu með myntute, kerti og jazz á fóninum (nokkuð sem ég kemst ekki upp með þegar Lennon er heima)
-Ég átti yndislegt samtal við stóra strump í kvöld áður en hann fór að sofa um kreppuna, gildismat, umburðalyndi, þakklæti og innri hamingju...samtalið var dásamlegt og endaði með því að ég kveikti á kertum inn á baðherbergi, hellti í freyðibað fyrir strumpinn og sagði honum að liggja ofan í baðinu og hugsa um allt sem væri gott í lífinu hans og hann væri þakklátur fyrir. Hann kom fram eftir hugleiðinguna, hreinn og skælbrosandi...kreppu-frelsaður...knúsaði mig og sagðist eiga besta líf í heimi...mission accomplished:)
-Ég fór á skemmtilegan fund í dag með leiðbeinendum mínum í HÍ og labbaði út ossa sátt við Guði og menn...gott að fá klapp á bakið
-Vigtin var vinkona mín í dag og staðfesti að allt fæðingarspikið væri flogið á vit ævintýranna!!!

Fyndið samt hvað þetta ástand líkist geðveikisástandi...eina sekúnduna er maður með hnullung í mallakút yfir áhyggjum og hina sekúnduna þakklátur...þakklátur fyrir allt sem er ókeypis...

-Brynkan sem ætlar að halda áfram að sannfæra sig um að hún sé glöð þó hún sé í rauninni fokk-fúl af því hún fær aldrei aftur að sjá Grey's Anatomy af því hún neyddist til að fórna áskrift á Stöð 2 vegna þessarar helvítis kreppu...stöðin læstist í kvöld...ég meina...gátu þeir ekki sýnt okkur smá skilning...ég meina...Grey's er á miðvikudögum...mátti ég ekki bara fá einn þátt svona í kveðjuskyni??!!!! Andskotansdjöfulsinshelvítisrugl...það er ekkert ókeypis í þessu lífi...

Note to self: Taka pillurnar mínar

The small things in life...

  • 3. Nóv. 2008 at 8:55 PM
foxí
Þegar ég kom heim eftir að hafa verið að læra sá ég engan þegar ég kom inn...en heyrði vatnhljóð úr baðherberginu...sem gat eiginlega ekki verið...af þeirri einföldu ástæðu að baðherbergið er búið að vera (dáldið lengi) í "renovation" og hefur verið sturtu-og baðlaust í nokkrar vikur...já og litið út eins og Kosovo gerði hér um árið...

En viti'menn...þegar ég nálgaðist baðherbergið heyrði ég hlátrasköll og skvetti...leit inn og sá fegurstu sjón sem ég hef séð langalengi...Arent og Thalíu að skvetta og leika sér í NÝJU BAÐKARI og Helgi sitjandi við hliðin'á þeim brosandi út af eyrum...illa stoltur...vei ó vei hvað ég var glöð...

Hér eru dýrin alsæl í nýja baðinu...


Og Bubbi Byggir alsæll...(ok..allt annað er ennþá sona dáldið í Kosovo stílnum...en hú kers...það er KOMIÐ BAÐKAR)...



En undanfarnar vikur hafa börnin baðað sig í eldhúsvaskinum...reyndar við alveg brjálæðislega vinsældir...



Og svo nokkrar pics frá undanförnum vikum...

Gerður Tinna litla rúsínurazzgat orðin 6 mánaða (á morgun)...


Og er DÁLDIÐ mikið kysst...




Og svo eru bráðum 2 ára ammli hjá þessum hérna...og Lennon er búinn að redda sólarhringspössun og búin að segja mér að taka frá laugardaginn frá hádegi...vhúppppívhúúúúúúú...



-Alsæla Brynkan kveður á vit Kosovo og ætlar að kveikja á kertum og liggja langalengi í maríneríngu í nýja baðinu mínu...grrrrrrrrrrrrr

Kreppujól bestu jólin...

  • 22. Okt. 2008 at 4:46 PM
foxí
Já...ég vaknaði í brjáluðu jólaskapi...enda snjóhvít jörð. Kveikti á kertum í morgunsárið, hitaði hafragrautinn og kyssti strumpana og Lennon bless þegar þau fóru dúðuð út í jólastemminguna.

Hvað sem þessari kreppu líður þá koma jólin bráðum með öllum sínum sjarma. Er eiginlega ennþá spenntari núna fyrir þeim en undanfarin ár. Lífsgæðakapphlaupið sem við erum öll búin að vera þátttakendur í undanfarið er svo mikið anti-jólaboðskapur að jólin voru orðin svo súrrealísk. Allt of mikið af öllu, tímaskortur og græðgi. Nú fáum við loksins sönn jól!

Jólin fyrir mér eru...
-rökkur og RÚV
-kerti og spil
-Nóa konfekt og góð bók
-samvera með fólki sem mér þykir vænt um...the more the marrier
-mandarínur og negulnaglar
-piparkökulykt
-knús
-að ætla að gera flott piparkökuhús en mistakast herfilega...vera samt stoltur af piparköku"hreysinu" sínu
-Heitt kakó með rjóma undir sæng
-Fullt fullt fullt af skrauti og gervisnjó...ekkert less is more rugl
-Heimagerðar jólagjafir...reyndar langt síðan mér tókst að finna tíma í það en hver veit með í ár??
-Jólagjafir sem kosta ekki endilega milljón kall en segja samt svo margt. Eitthvað persónulegt...
-Ajax lykt í bland við baksturslykt
-Þegar allt er á síðustu stundu en samt ekki neitt panikk...bannað að panikka á jólunum
-þegar kirkjuklukkurnar hringja inn jólin kl.18.00 á aðfangadag...fyllist bara hreinni hamingju...allt svo rétt og gott ákkúrat þá
-Jólakveðjurnar á RÚV...bjargaði mér alveg þegar ég eyddi jólunum í Noregi...stillti á RÚV á netinu og íslensku jólin komu til mín
-Að skrifa á jólakortin að kvöldi til með rauðvín í glasi og jólalög á fóninum. Hef vanist því undanfarin ár að gera þetta ein og ég held að ég haldi því bara við. Smá sona gott lónlímóment...kannski að ég skvísi þessu inn eitt miðvikudagskvöldið þegar Lennon er í fótbolta...hvur veit...
-Allrabesta mómentið er svo þegar maður skríður upp í hrein og straujuð rúmföt á aðfangadagsnótt og hugsar um hvað lífið er gott. Hjartað er einhvernveginn bara stútfullt af kærleik og þakklæti. Man eftir þessu síðan ég var lítil og tilfinningin hefur ekkert breyst...

Já...jólin koma þrátt fyrir allt...sem betur fer:) Ég nýtti jólaskapið í að þrífa alla skápa í morgun...sálartetrið fékk algjört Ajax bensín fyrir vikið. Ætla svo að toppa þetta með því að kaupa ilmkerti og mandarínur á eftir fyrir kósíkvöld með sjálfri mér í kvöld...hver veit nema ég skelli í eins og eina uppskrift af smákökum...bara smá forsmekk...

Lífið er gott þrátt fyrir allt...sérstaklega þegar lífið er fullt af kærleik
-Knúz á alla jólastrumpa

СТОРИ БРОДИР...

  • 8. Okt. 2008 at 11:44 PM
foxí
Ákvað að skapa mér smá samkeppnisforskot á atvinnumarkaði með því að drífa mig bara í því að læra rússnesku...ekki seinna vænna miðað við aðstæður...annars eru verðlaun í boði fyrir þann sem ræður rússagátuna hér að ofan...

Annars fór ég í sund með Lennon áðan...Ekki frásögum færandi þannig lagað séð nema...jú...varð fyrir undarlegri upplifun...

Ég lá í pottinum í góðum fíling...lét þreytuna og þynnkuna (eftir langt og áhyggjulaust efnahagsfyllerí) líða úr mér...í því sem ég horfði upp í stjörnubjartan himininn fór ég að heyra raddir...já gott fólk...ég er ekkert að grínast...

Himininn talaði til mín með rússneskum hreim...Djúp og megnug karlmannsrödd sagði "sztelpúr sztelpúr...bannnnad ad leika zér á línúnní"...ég leit skelkuð í kringum mig...var mig að dreyma eða var Rússinn kominn??!!

Þegar ég rankaði við mér áttaði ég mig á því að blessaður sundlaugavörðurinn í turninum var af baltneskum uppruna...tja...nema að þetta hafi verið æfing...

Ísland á morgun?


Annars er mikilvægt að einblína á jákvæðu hliðarnar...ég sé t.d. fyrir mér að geta skipt út skutbílnum mínum í sjömanna bíl sem ég sá ekki fram á í bráð áður en Rússarnir redduðu okkur...snilld!


Ps. Er ekki alveg búin að átta mig á því hvort ég er stödd í heimildamynd, vísindaskáldsögu eða Truman Show...

Búhúúú...

  • 29. Sep. 2008 at 10:08 PM
foxí
Hvar eru kommentin? Líður eins og Palla sem var einn í heiminum...

-Brynkan ponsu sár

Mars og Venus...

  • 24. Sep. 2008 at 11:54 PM
foxí
ELSKA að vera stelpa...hef örugglega sagt það milljón sinnum en ég segi það enn og aftur!

ELSKA að "stelp-ast"...bæði með sjálfri mér og öðrum görlís. Elska líka að Lennon sé strákur...hann fer alltaf á miðvikudögum með strákunum að spila fótbolta og svo á Players á eftir. Hversu strákalegt er það??!!

Kemur heim fullur af Testesteróni á meðan Estrógenið rennur um æðarnar mínar eins og rjómi.

Elska að vera ein heima alltaf á miðvikudagskvöldum á meðan hann hellir úr testesterón skálunum með strákunum. Ég er búin að horfa á alla stelpuþætti dauðans (ELSKA miðvikudagssjónvarp), setja á mig maska, plokka á mér augabrúnirnar, fara í langa og góða sturtu og maka á mig öllum kremum sem fyrirfinnast í þessu húsi (og já...þau eru mörg skal ég segja ykkur). Lykta eins og snyrtivörubúð (sem er ekki endilega gott...tek þetta stundum aaaaðeins of langt). Svo tilheyrir alveg miðvikudagskvöldunum að taka eitt til tvö görlí símtöl um stórmerkilega hluti eins og hvað maður er búinn að grennast mikið á nýja kúrnum, hver vann Britain's Next Top Models, slúðra ponsu og sonna. Mmmm...gerist varla betra.

Tók einmitt eitt görlí kvöld með Ásdísi sis síðasta föstudag. Gúdd stöff. Töluðum endalaust á meðan við sporðrenndum einni góðri rauðvínsflösku...bjútífúl. Lennon skutlaði mér til sis og sagði pent áður en ég lokaði bílhurðinni; "Talaðu nú úr þér líftóruna ástin mín"...hahaha...pent orðað. Hann var sem sé að vona að ég myndi tæma úr skálinni svo að ég þyrfti ekki að blaðra við hann um þessa hluti. Skil það ekki ennþá en Lennon er bara so mikill stráksi að hann hefur ekki einu sinni áhuga á heimsviðburðum eins og hvað er að gerast í lífinu hjá stjörnunum í Hollywood (sem hann segir reyndar að ég tali um eins og góðvini mína...sem þeir náttúrulega eru)!

Átti einmitt mjög lýsandi svoleiðis samtal við hann í dag...
Ég: "Heyrðu...varstu búin að heyra þetta með Lindsey"
Lennon: "Lindsey"???!!
Ég: "Já..þúst...Lindsey Lohan"
Lennon: "Nei..." (svipbrigðin gáfu strax til kynna að nú væri bara ágætt múv hjá mér að stoppa en NEI...bara VARÐ að segja honum frá fréttunum...ég meina...heimsviðburðinum).
Ég: "Já...heyrðu hún er bara komin út úr skápnum!!" (Þvílíkt ánægð með mig...alltaf fyrst með fréttirnar).
Lennon: "Brynhildur mín...GÆTI ekki verið meira sama" (JE RÆT)
Ég: "Óó"

Note to self: Hringja í görlís ÁÐUR en ég fæ görlí-munnræpu!!!

Brynkan full af estrógeni...

HHS familían...

  • 22. Sep. 2008 at 10:43 PM
foxí
Ég eyddi tveimur af bestu árum lífs míns í að uppgötva sjálfa mig, læra margt og mikið um Sókrates, Adam Smith og Karl Marx...með öðrum orðum í HHS (heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði) á Bifröst. Þegar ég skráði mig í námið vorið 2005 óraði mig ekki fyrir öllum ævintýrunum sem biðu mín...já eða breytingunum sem áttu eftir að eiga sér stað í lífi mínu.

Í grófum (og ritskoðuðum) dráttum...
-skildi ég við barnsföður minn fljótlega
-flutti ég út í sveit (en get nú ekki sagt að ég hafi sagt skilið við borgarbarnið í mér...engar gúmmítúttur fyrir mig takk)
-lærði ég svo margt...ekki síst um sjálfa mig
-kynntist ég FRÁBÆRU fólki og nánum vinum
-fékk ég tækifæri á að ferðast bæði til Brussel og Singapore í gegnum skólann...tær snilld
-átti "craaazy" góðar stundir sem voru ákkúrat það sem ég þurfti á að halda á þessum tíma
-púkaðist endalaust með Ingzunni minni...það er allt læst í minningum sem er svo LANGT frá því að vera við hæfi þessari blogg-færslu;)
-kláraði BA-prófið mitt á tveimur árum sem liðu ó svo hratt
-kynntist ég mínum heittelskaða (reyndar ekki í sveitinni en allavega á þessum tíma)

Já...ógleymanlegir tímar...

Síðustu helgi var HHS-hittingur sem ég komst ekki á...er strax farin að hlakka til að hitta krúttin mín öll næst þegar klanið kemur saman...

Þakka Guði á hverjum degi fyrir "Bifrastarævintýrið" mitt...þó það sé líka gott og rétt að það sé búið...það tók nebbla svo gott við...

Knús á alla HHS-ingana mína!
Ps. KVITTA svo! SÉRSTAKLEGA ef þú ert HHS-ingur:)
Pps. Hendi inn nokkrum pics sem ég fann af HHS-ingunum mínum





Gott'a love them smurfs...

  • 20. Sep. 2008 at 9:48 PM
foxí
Átti golden moment í dag...

Staður: Listdansskóli Íslands
Stund: 14.50

Sit í sæluvímu að dásama dóttur mína að dansa ballett ásamt fullt af öðrum foreldrum með stjörnur í augum yfir dýrðinni. Allir í sameiginlegu foreldra-happímómenti.

Síminn hringir og ég svara.

Mamma í símanum. Nýjasta strumpaeintakið (Gerður Tinna) gefur frá sér hávaðaöskur og er búin að kúka...ok...ég skelli henni á sófann og skipti á kúkableyju og held símanum með öxlinni. Arent Orri (sem var búinn að bíða óþolinmóður í 45 mín. eftir að systir sín kláraði ballett-tíma) hverfur úr augsýn (það veitir aldrei á gott þegar það gerist).

Ég held áfram að tala í símann og skipta á kúkableyju þar til ég heyri brjálað sírenuhljóð.

HVAR ER ARENT???

Held Gerði Tinnu í skefjum og símanum með öxlinni og næ að snúa hausnum í átt að stiganum...sé Arent koma skömmustulegan niður. Allir halda fyrir eyrun, ballett-tíminn stöðvast og Gerður Tinna sturluð. Svitinn perlar af yfirvör undirritaðrar.

Ég gef Arent Orra augnaráð um að koma STRAX...

"Hvað gerðir'u Arent??" (hvísla í eyrað á honum svo að engum gruni nú að það hafi verið MITT barn sem kom þessum ósköpum af stað)...Arent hvíslar í eyrað á mér: "Ehhh...ég kom bara við einhvern takka þarna uppi og þá kom slökkviliðshljóð!!" (Barnið horfir á mig stórum hræddum augum)....

Hjartslátturinn eykst hjá undirritaðri...Kveð mömmu, loka bleyjunni og get ekki annað en bara hrist hausinn og hlegið. Þetta var bara OF crazy...gat ekki annað en bara hlegið að mómentinu...craaaazy...

Gott'a love them smurfs...lífið er allavega ekki grámyglað á meðan maður á fjögur stykki af þessum snillingunum...

Uppáhalds...

  • 16. Sep. 2008 at 10:06 PM
foxí
-að hlusta á regnið úti
-að sitja í rökkrinu með kveikt á kertum að skipuleggja masters-ritgerðina
-að drekka piparmyntute í náttfötum

mmmm....mala eins og köttur bara...

Like a Virgin...

  • 13. Sep. 2008 at 3:09 AM
foxí
af hverju blogga ég?

Jú...hef oft lent í þessum umræðum...bæði við sjálfa mig og við aðra... Já ...held ég verði að kvóta minn gamla vin úr HHS hann Descartes og umbreyta aðeins.."Ég blogga, ergo sum"...

Það er eitthvað alveg óskaplega gott við að skrifa. Alveg óháð athyglisþörf. Nú veit ég að margir setja punktinn við i-ið hérna og lesa ekki lengra í þetta sinn en so be it...blogg snýst einmitt ekki um lesningartölur eða vinsældarkosningar...kannski einna mest um tjáningu.

Og þar erum við svo skemmtilega ólík.

Sumir vilja tjá sig um hundinn sinn, sumir um börnin sín, sumir um pólitík, sumir um efnahagsmál og aðrir um einkalíf sitt. Veit ekki rassgat í bala hvar ég stend í þeirri flokkun en ég veit að ég hef þörf...til að tjá mig...til að blogga...hefur allavega sparað mér nokkrar Cipralex um daganna...að geta tjáð mig út í bláinn...
...
Hef alveg tekið eftir því samt að ég blogga aðallega þegar ég er annaðhvort óskaplega glöð eða fokk fúl...þegar allt er bara venjulegt vantar alveg inspireisjonið...þá er bara allt svona "blahhhhh"...

En stundum er lífið bara þannig...ekki óþolandi og ekki frábært...bara slétt ágætt...

Æji...veit þið skiljið mig...

EN...núnar er gott og gaman að vera til...meira en slétt ágætt. Skólinn gengur blússandi vel og allt að smella saman í undirbúning fyrir mastersritgerðina mína. Á kost á tveimur ótrúlega spennandi verkefnum sem ég er að reyna að gera upp á milli. Núna er allt e-h veginn að smella saman...pússlin sko. Fatta núna að ég er actually að fara að KLÁRA þetta og verða stór. Og er bara að fara að trúa því að ég eigi eftir að gera e-ð fullt skemmtilegt þegar ég byrja að vinna. Skítt með kreppuna...alltaf þörf á góðu fólki! Er það ekki annars?

Enníhás...er að fara í gott partý á morgun..."Pink Pussy's" að hittast...alveg fáránlega frábær hópur úr Kvennó...get ekki beðið. Höfum alltaf haft þema. Þemað í ár er "brúðkaup"...eigum sem sé að mæta uppstrílaðar í bryllupsdressum...og vátsj hvað það er gaman! Hvaða stelpu finnst ekki gaman að dressa sig upp í brúðarkjól? Taka smá forskot á sæluna...thíhí...Brúðkaupskjólareddingur, tjullkaup og keppnisútfærsla...það er þema kveldsins! Líður alveg kjánalega skemmtilega...bötterflæs bara!

Like a virgin...Trallalllaaaa...

"Kleppur Góðan daginn"

  • 27. Ágú. 2008 at 5:58 PM
foxí
Hef komist að því að hausinn á meðal-manneskju eins og mér getur með engu móti tekist á við allt skipulag sem fylgir sex manna fjölskyldu án þess að setja þetta upp í Excel...Jesús!

Það er algjört system overload í gangi hérna...sundtímar, læknistímar, fótboltamót, kaupa afmælisgjöf og skutla í ammli, ballett-tímar, skráning, endurnýja skólaföt, komið gat á stígvél, mjólkuróþol, foreldrafundir og Gvööööð má vita hvað...hjálpi mér allir! Þetta er náttúrulega fyrir UTAN það sem maður ákveður að taka sér fyrir hendur sjálfur...þ.e. eitt stykki mastersnám, halda heimili, versla, þvo billjón þvotta og soleiðis smámuni (og ég meina SMÁMUNI miðað við allt hitt)!

Hvernig í and******* fóru þær að hérna áður fyrr? Get alveg séð lógíkina í því að kynsystur mínar hafi verið heimavinnandi...þetta er algerlega fullt starf og rúmlega það!

Það fer algjörlega eftir dagsforminu hvernig þetta leggst í mig. Stundum er ég vibba leiðinleg og stend bara á orginu og tala í boðhætti við alla. Er t.d. ALVEG farin að skilja hagræðinguna í alræðisstjórn...miklu effektívara...lýðræði hvað?!! En oftast sé ég nú samt húmorinn og fegurðina í þessu...held það jafnist ekkert á við að eiga svona vel af guði gerð greppitrýni eins og ég á...ekki neitt...jafnvel þó ég þurfi að nota excel skjal...thíhí...þetta er náttla bara dáldið fyndinn brandari!

-Brynkan á leiðinni í spennutreyju...

Ps. Djöfull bonda ég við þess mútter hérna að neðan...verð að hitta hana yfir kaffi einhverntímann! Samt ekki laust við að ég sé dáldið hrædd við hana...svona eins og börnin mín þegar ég stend á orginu og garga á þau í boðhætti...múhahahahaaaaaaa...þarf samt að æfa mig aðeins í "passív-agressíva" lúkkinu þið vitið...garga brosandi! Það er KEPPNIS...

Sweet...

  • 26. Ágú. 2008 at 10:54 PM
foxí
-að vera búin með prófin
-að fá samt viku til að "slappa af" þangað til skólinn byrjar...ok...kannski ekki slappa mikið af en allavega vera laus við skólasamviskubit
-að vera búin að taka til í skápum sem eru búnir að pirra mig í margar vikur
-að hafa gert uppgötvun ársins í dag...þ.e. að Biotex virkar brilljantlí til að þrífa klessur af veggjum (how utterly domestic and boring)
-að hafa horft á eftir Strump nr.2 labba í skólann í fyrsta sinn í dag með Strump nr.1
-að hafa haft tíma til að lesa sögu fyrir Strump nr.2 og Strympu nr.1 í kvöld fyrir háttinn
-að allt sé hreint og fínt heima
-að sitja hérna í rökkrinu með kertaljós og piparmyntute í náttbussum
-að vilja hvergi annarsstaðar vera í þessu lífi en ákkúrat hérna NÚNA...

Brynkan loving it...

Black out...

  • 24. Ágú. 2008 at 9:15 PM
foxí
Jebbsadeizí...kláraði tvö stykki próf á miðvikudaginn var. Verkefnastjórnun og þekkingastjórnun théheeekkk!

Gekk bara dáldið vel held ég. Hef reyndar aldrei á minni skólagöngu tekið tvö próf sama dag en allt er einhverntímann fyrst. Get allavega krossað þetta út af hræðslu-listanum. Þurfti að hlaupa á milli bygginga úr einu prófi í annað og prófstjórinn fór með mig í eitthvert bakherberbergi (úúúúú...hljómaði skemmtilega illa...).

Þegar ég var svo búin með próf nr.2 hafði ég ekki GVEND um hvar ég var stödd í heiminum...hvað þá byggingunni. Þegar ég svo fattaði að ég væri stödd í 101 Reykjavík (nánar tiltekið í aðalbyggingu Háskóla Íslands) fór þetta nú eitthvað að rifjast upp fyrir mér...eða allavega þangað til stigarnir urðu á vegi mínum. Ég stóð nebbla í þeirri meiningu að ég væri á 1.hæð en var víst á 3.hæð. Var greinilega í einhverju móki á leiðinni úr einu prófi í annað.

Smá déjavú frá því þegar maður gleymdi stundum leigubílaferðinni heim vitið'i ekki? Total black out bara...sona ..."bíddu...ég maaaaaan eftir að hafa fengið mér Hlölla....svo í legubílaröðinaaaaa...og svoooooo....hhhmmmmm.....". En hetta reddaðist...rankaði við mér þarna skömmu eftir prófið og brosti bara allan hringinn það sem eftir var þann sólarhringinn. Fannst ég hafa fætt fimmta barnið bara...var svo stolt af sjálfri mér. Stóru fargi af mér létt!

En nú er slagurinn hafinn aftur...síðasta prófið í þessari lotu á morgun...stefnumiðuð stjórnun hírr æ kommm...stefni á að muna leigubílaferðina heim í þetta sinn...

knús fyrir allan (taxi)peninginn

Domestic rohokkk...

  • 12. Ágú. 2008 at 11:46 PM
foxí
Einhvernveginn sá ég ekki sjarmann yfir því að vera í prófum í gamla daga...sé það samt alveg núna í smá hyllingum...þegar ég þurfti bara að hugsa um rassgatið á sjálfri mér (þó það væri nú stutt gaman...hehe) og gat óverdósað á kaffi og sígó án þess að sofa í heilu sólarhringana...

Eitt af því sem breytist við það að fjölga mannkyninu (svona hressilega) er að maður hættir að geta snúið sólarhringnum algerlega við...maður verður svona nokkurnveginn að fúnkera þó maður sé í prófum...muna læknatíma, pakka nesti í hjólaferðir og fleira skemmtilegt sem stóra strump dettur í hug (var t.d. að koma úr hjólaferð til og frá Laugarvatni takk förer), þvo hundrað og zilljón þvotta (þegar ég nenni því), passa að allir séu að borða úr öllum fæðuhringnum á heimilinu (nema Helgi...hann er vonlaust case), hjálpa við heimalærdóm (nema náttla núna...sumarfrí skiljið'i),passa að það séu til samstæðir sokkar handa öllum mannskapnum (ekki auðvelt...af einhverjum ástæðum étur þvottavélin okkar sokka), borga reikninga og svo mætti lengi telja...sem sé...lífið bíður ekki lengur upp á svefnlausar nætur með kaffi, sígó og skólabækur... Í staðinn hef ég samviskusamlega þurft að skipuleggja hæfilega marga klukkutíma á dag í allt sumar við þessa annars skemmtilegu iðju...að læra fyrir prófin sem ég tek í næstu viku.

Hvað varð um koffínóverdósið og stútfullt skyndiminni síðustu daga fyrir próf sem tæmdist jafn skjótt????

Ákvað að sýna ykkur hvað ég er að tala um myndrænt...svona before and after myndir...Brynkan pre-domestic í prófum...


og svo Brynkan gone domestic...


Segið þið svo að það sé ekki smá rokk í því að vera hundraðbarnamóðir í prófum! Mér finnst það töff...

Rohokkkkkk
foxí
Uppáhalds núna eru KLÁRLEGA þessi tvö...
http://www.myspace.com/hjaltalinband og http://www.youtube.com/watch?v=EkHTsc9PU2A

Maður þarf allavega að vera geðveikur fýlupúki til að fíl'ekki þessi lög...og svo hitta þau mig algjörlega í hjartastað af pörsonal rísons....grrrrrrr


Ogsssoooo eru það myndir úr reisunni for jú mæ svítsvít frálæn Flannel...

Fyrsta flugferð dömunnar...destineisjön:Bergen...



Vaknað örlí í Bergen og farið í snilldargöngutúr í rugl góðu veðri...




Oooooog...þá var kominn tími á brjálað road-trip til Stavanger...da pleis tú bííí


Þar sem Gerður Tinna sló í gegn med det samme og eignaðist endalausa aðdáendur á öllum aldri...




Enda ekki skrýtið...maður bara blómstraði og blómstraði í ferðinni...




Annars var bara taumlaus gleði allan tímann á öllum vígstöðvum...krakkafjör, familíufjör, kærustuparafjör, vinkonufjör, stelpufjör...fullorðinsfjör...eiginlega bara allt sem endar á fjör...













Knús á línuna...mílovjúlongtæm

Komin heim í Hlíðardalinn...

  • 5. Ágú. 2008 at 10:15 AM
foxí
Jebbsadeizzzí...komin heim úr endalaust hressri reisu til Norge...einskonar Pílagrímsferð tileinkuð stærsta strumpnum á heimilinu. Á meðan Arent og Thalía flugu á vit ævintýranna til Spánar með pabba og Rúnu skelltum við Helgi okkur til Norge með Ragnar Loga og Gerði Tinnu. Þvílík dásemd!

Flugum til Bergen og keyrðum meðfram öllum fjörðunum alla leiðina til Stavanger þar sem beið okkur heilt klapplið af gömlum vinum. Ragnar Logi var í endalausri minningar-hamingjusprengju en eins og allir vita sem þekkja okkur þá bjuggum við þar í ein fjögur ár. Helgi fékk að sjá öll herlegheitin og er núna kominn í Norge-klúbbinn. Baaaara snilld. Endalaus kvöld setið út á svölum og hlegið út í eitt með Lailu og Sammad...dýragarðaferð, skemmtigarðaferð, strandarferðir, bæjarferðir...bara allt sem hugurinn girnist...namminamm:)

En um leið og annað ferðalag tekur enda hefst annað ferðalag...ferðalagið nefnist "leiðin að sumarprófum". Kannski ekki eins spennandi en samt gaman...var búin að kvíða endalaust fyrir því að ætla mér að fara í 3 próf með eina litla 3ja mánaða...en viti menn...þetta er bara fínt! Ég elska að lesa um það sem ég er að læra og svo er fínt að vera að gera eitthvað annað með mömmudjobbinu. Heldur heilanum gangandi! Er bara svo þakklát fyrir að allt gangi upp og að það sé pláss fyrir mig að vera ég...ekki bara "mamma Brynhildur".

Þetta sumar er búið að vera hreinasta snilld...taumlaus gleði bara. Hlakka samt líka til vetursins...tók smá "þykjustunni vetrar-kósí kvöld" í fyrrakvöld. Slökkti öll ljós, dró fyrir og kveikti á kertum. Gerði rómó-dinner með öllu tilheyrandi, dró sængina upp í sófa og sofnaði með sætasta mínum yfir bíómynd....grrrrrrrr... Elska veturinn líka...þó sumarið sé frábært...bæði betra bara:)

Já...lífið er eitt stórt ferðalag...er staðráðin í því að njóta þess!
Kiss og knús á alla.... *smack*

Ps. Myndir koma bráðum af ferðalaginu góða
Pps. Takk Takk Takk allir fyrir yndisleg komment alltaf hreint...lovvvit!

Sjitturinn titturinn hóran og mellan!!!

  • 30. Jún. 2008 at 10:47 PM
foxí
Andskotinn! Sumarið var rétt að byrja og það er bara nærri því búið!!!! Helv.... Ég sem átti víst að læra undir þrjú próf... Úpps...

Enníveiss....sumarið er alveg að gera góða hluti fyrir mig...pikknikk, Nauthólsvík, tipsy að baka brúðarkökuna með Ásdísi sis, halda upp á ammli Arents á 17.júní, gæsa Dísu sis, gæsa Olgu mína, dansa af mér tærnar í bryllupi hjá sis, eiga ammli, fara í bíltúr með sæta í ammlisdinner á Eyrabakka, vera í óþolandi (en uppáhalds) "Ingu og Bryn" gírnum á ammlinu mínu á útitónleikum hjá Dalton á Hressó, taka ammlislagið fyrir sjálfa mig uppi á sviði á Hressó (úfffff...), knúsa krakkana mína í spað, dást að þeim til skiptis, fá pabba í heimsókn frá Norge og litlu systkinin mín...játs...allt of mikið að gera...enginn lærdómur!!!!

En lífið er lærdómur...er það ekki? Kannski að ég reyni að sannfæra þau hjá LÍN um það...

Smá pics síðan síðast...








Knús á línuna...Djísöss lovs jú

Sumarið er tíminn...

  • 13. Jún. 2008 at 8:38 PM
foxí
Jahérna hér...sumarið er komið og ég er að fílað'a!!!! Er svo glöð að geta hreyft mig og notið lífsins eftir mikla kyrrsetu síðustu mánuði meðgöngunnar. Díííí hvað er gott að vera til þegar maður er stálhraustur! Er búin að vera í hálfgerðri bíómynd bara undanfarnar vikur...

Búin að...
-Labba út um allt með Gerði Tinnu í vagninum
-Rekast á fullt af skemmtilegu fólki á förnum vegi sem ég hef ekki hitt allt of lengi
-Taka fullt af spontant löntsjum eða kaffisopa í bænum með þessum óvæntu hittingum
-Fá fullt af plönuðum og spontant heimsóknum
-Fara í spontant kvöld-bíltúr á Stokkseyri og borða humar með sætasta...með því rómantískasta sem ég hef gert...elska líka allt svona spontant...fjaran og öll litlu sætu húsin á Eyrabakka....lovvit...fer alveg í topp tíu þetta sumarið held ég bara
-Fara á Sex and The City með sætasta...smá vonbrigði eigilla samt...alltaf gaman að fara í bíó en þetta var samt meira eins og laaaaangur þáttur en mynd...skemmti mér samt aðallega við að sleikja upp fíluna í Lennon yfir því að vera dreginn á mynd í sal uppfullan af eintómum "Stellum" og saumaklúbbum...minn ekkkkkki að fílað'a...thíhíhí
-Fara á ææææææðislega tónleika með James Blunt í boði Sissa og Guðrúnar...takk takk takk! Algjört gúmmilaði!!!!!
-Fara í hjólatúr með krakkana og fá okkur smörrebröd grasagarðinum...leið eins og ég væri í úgglöndum bara...
-Frysta fullllllt af happí-mómentum í hjartanu...mmmmmmmm

Þetta er nú bara brotabrot af undanförnum vikum...lifi í algjörum sumardraumi þessa daganna. Þemað er klárlega "Spontant"...kíla á allt sem er gaman...sumarpróf hvað???!!! Lærdóms-samviskubitið hlýtur að fara að kikka inn...En þangað til er það bara fönn fönn in ðe sönn held ég bara!

Hér eru nokkur pics...









Gerður Tinna Helgadóttir...

  • 13. Jún. 2008 at 8:32 PM
foxí
fékk nafnið sitt þann 6.júní við yndislega athöfn heima í Miðtúninu. Hún er stolt alnafna föðurömmu sinnar sem heitir líka Gerður Helgadóttir.

And nothing else matters...

  • 23. Maí. 2008 at 11:37 PM
foxí
Er með svo mikil fiðrildi í mallakútnum mínum þessa daganna. Finnst eitthvað svo gott að vera til og mikið gott framundan. Er svo úper ánægð að vera orðin "ég" aftur...hætt að vera bumbulína skiljið'i.

Fannst ossa gaman að vera bomm í fyrsta skiptið...jafnvel annað skiptið líka...svo fór bara sjarminn af því. Verð bara að viðurkenna það. Þoli ekki að vera bomm en elska að fá krílin í hendurnar. Hljómar kannski illa en hey!!!!

Aukakíló, grindargliðnun, geðvonska og þvagleki er barasta ekki neitt sexí í mínum augum... Og EINA fólkið sem talar um að ólétta sé svo æðisleg eru annaðhvort konur sem hafa aldrei verið óléttar, konur sem voru bomm fyrir svo löngu síðan að þær eru búnar að gleyma þjáningunum...nú eða bara einhverjir karlpungar sem hafa ekki Guðmund um hvað þeir eru að tala um! En Heisus hvað er gott að fá þessi gúmmelaði í heiminn! Það slær bara ekkert þá upplifun út...lífið meikar eitthvað svo mikinn sens þegar maður knúsar krílin sín. Allt stöðvast bara...eins og vinir mínir í Metallicu sögðu svo vel..."and nothing else matters..."
foxí
er mér efst í huga ákkúrat núna. Séríslenska vorlyktin er komin og sumarið er handan við hornið með öllum sínum ævintýrum waiting to happen.

Mér til mikillar gleði er ungrú Gordjöss Helgadóttir líka komin heil á höldnu til mín alla leið úr bumbunni þannig að sumarið er tíminn æ tell jú!

Í sumar ætla ég m.a. að...
-ditta að húsinu mínu...insæd end át
-KLÁRA að prjóna maríubjölludressið sem ég byrjaði á rétt áður en ungfrúin fæddist
-njóta þess að lesa fyrir sumarprófin í rólegheitum...njóta þess að hafa tíma til að dýpka skilninginn minn á efninu
-fara í löntsj með fullt af skemmtilegu fólki
-fá mér hvítvín með löntsjinum...grrrrrr
-Eiga góðar stundir með fullt af fólki sem mér þykir vænt um
-fara niður memory lane og fljúga með Lennon, Stóra strump og Missí little Gordjöss til Norge
-kissa og knúsa krakkalakkana og Lennon til óbóta í tíma og ótíma
-muna að gera alltaf talningu á leiðinni inn og út úr húsi (börnin orðin svo mörg að maður er hreinlega hræddur um að fara að gleyma einhverju þeirra í Bónus...dreymir fyrirsögnina í helgarblaði DV með mynd af börnunum mínum einum og yfirgefnum...uppstilltum fyrir framan bleika grísinn)
-note to self: horfa á Sound of Music og taka punkta um hvernig þau fóru að þessu með flauturnar á krakkaskarann...

Er ekki svipur með okkur? Allavega þegar ég er í sjúklega meiriháttar góða skapinu mínu...En svona að öllu gríni slepptu vantar bara tvö börn upp á að ég nái Von Trapp familíunni...fríkí staðreynd...


Ps. Samt er það kannski ennþá meira fríkí að þegar ég sá þessa mynd fannst mér að það hlyti að vanta nokkra krakka á myndina. Mér fannst sem sé EKKI margir krakkar á myndinni...það segir kannski meira um ástandið en margt annað...HEISUS!

Brynkan going Trump...

  • 14. Maí. 2008 at 12:08 PM
foxí
Ef ég gæti fangað lyktina af kollinum á litlu krúslu og tappað á dósir yrði ég grilljónarmæringur....mmmm...lovvvvvit...

Ást er...

  • 7. Maí. 2008 at 5:10 PM
foxí
þegar litla krúsímús og pabbamús eru búin að lúlla í tvo tíma og ég sakna þeirra...
foxí
Já gott fólk...héðan af verður alltaf partý þann 4.maí í Miðtúni 70...því þá fæddist ástarhnoðrinn okkar Helga...já...lífið er ljúft og við erum rík.

Allt gekk eins og í sögu...stelpan tæp 17 merkur og hraustari en íþróttaálfurinn.

Hér kemur sagan í myndum...

Síðasta bumbumynd before arrival...


Og hér er ég svo komin...








16 tíma gömul á leiðinni heim...



Og hér er ég komin heim þar sem allir hafa beðið spenntir eftir mér lengi lengi...ég var stjarna dagsins í dag (enda fyrsti dagurinn minn)...

Hér er ég komin í vögguna mína...en ég stoppa nú lítið við þar...ég er nebbla dáldið vinsæl. Þó ég sé bara 1 dags gömul er ég alveg búin að fatta að ég þarf ekkert að liggja hérna lengur en 1 mínútu af því allir vilja fá að knúsa mig...


Sérstaklega þessi flottu systkini sem ég á...








Svo spjallaði ég fullt við pabba minn...






Að lokum Helgi með prinsessurnar sínar tvær (sú þriðja smellti af myndinni)...


Andamamma out...

Bored out of my fucking miiiiiiiiind!!!!

  • 28. Apr. 2008 at 10:11 AM
foxí

Djöfull og dauði hvað ég þoli illa aðgerðaleysi!!!!! Ekki undir normal kringumstæðum samt...þegar ég get gert það sem mér sýnist....líkamlega séð. En nú er grindargliðnunin búin að yfirtaka gleðina og ég labba eins og hálfviti í hænuskrefum. Og það er vont. Langar að fara út að labba (fyndið hvað það freistar bara þegar maður getur það ekki). Labba niður Laugarveginn, fá mér Latte og browsa í gegnum blöðin. 

Er sem sé búin með prófin sem ég ætla að taka núna í vor og bara farin að bíða basically. Allt reddí bara. Búin að svamla um í öllum sundlaugum bæjarins undanfarna daga og Helgi farinn að kalla okkur fiska. Það er eiginlega eini staðurinn sem mér líður vel...enda selur þessa daganna! 

Held samt að ég sé komin með plan dagsins...byrja á sundi (sörpræs sörpræs) og svo reyna að taka hænuskref inn í einhverja prjónabúð og kaupa mér prjóna góss...þá hef ég allavega eitthvað að gera hérna í sófanum.

Tikk-takk-tikk-takk-tikk-takk-tikk-takk

tékk

  • 26. Apr. 2008 at 10:38 AM
foxí
 -krúsídúllurassgötsföt komin niður í tösku...tékk
-búin í þeim prófum sem ég tek í þessari lotu...tékk
-aðgerðalaus og svooo sátt við það...tékk
-farin að telja niður dagana...tékk
-búin að borða baðkar af ísmolum undanfarna sólahringa...tékk
-farin að hlakka fáránlega til að geta hreyft mig eðilega (ekki eins og selurinn Snorri)...tékk
-farin að hlakka til sumarsins...tékk

Ice Ice babyyyyyy

  • 21. Apr. 2008 at 9:18 PM
foxí

Hver hefði trúað því að ísmolar ættu eftir að gera mig svona hamingjusama??!!! Hækkandi lán og hálfvitar í Seðlabankanum ná ekki einu sinni til mín ef ég á fullan poka af ísmolum. Ef ég ætla VIRKILEGA að dekra við mig þá kem ég við á Subway og fæ mér vatnsglas með crushed ísmolum...það er náttla bara toppurinn á tilverunni. Svo bryð ég þá þangað til ég er orðin dofin í skoltinum og tala eins og eftir 10 Cosmopolitan. Svo er annar plús í þessu öllu saman...Lennon getur bara ekki hætt að kyssa mig þegar skolturinn er sonna ískaldur...thíhí

Er alvarlega að spá í að kaupa mér klakavél...sona sem mylur ís....held ég myndi bara liggja með opinn skoltinn undir henni og mala allan daginn...grrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr


All the small things in life....

Woody er með þetta...

  • 17. Apr. 2008 at 3:09 PM
foxí

"Next Life" by Woody Allen

In my next life I want to live my life backwards. You start out dead  and get that out of the way. Then you wake up in an old people's home feeling better every day. You get kicked out for being too healthy, go collect your pension, and then when you start work, you get a gold watch and a party on your first day. You work for 40 years until you're young enough to enjoy your retirement. 

You party, drink alcohol, and are generally promiscuous, then you are ready for high school. You then go to primary school, you become a kid, you play. You have no responsibilities, you become a baby until you are born. And then you spend your last 9 months floating in luxurious spa-like conditions with central heating and room service on tap, larger quarters every day and then Voila! You finish off as an orgasm!

I rest my case. 

Snillingur!!


 

foxí
-maður hefur aldrei hitt
-lætur mann vakna 2-3svar á nóttu til að pissa
-heldur manni andvaka með spörkum í rifbein
-lætur mann framleiða hormón sem mýkir svo laglega öll liðamót að mann langar til að fara að gráta í hverju skrefi
-lætur mann safna svo miklu vatni í líkamann að varirnar á manni fara bráðum að líkjast gellunni í Bold and the Beautiful (botox hvað??!!)
-er algjörlega óútreiknanleg og getur tekið upp á því að sparka í þig hvenær og hvar sem er...
-getur allt í einu dottið í hug að nú sé ógeðslega sniðugt að ýta kröftuglega í pissublöðruna á manni...með tilheyrandi afleiðingum...
-kemur í veg fyrir að maður geti borðað sushi, gefið sig á vald Bakkusar, dansað uppi á borðum, borðað reyktan lax, hrátt kjöt og svo mætti leeeeeeengi telja (hlusta reyndar bara á helminginn)
-lætur manni líða eins og kynlausri urtu með hreifa
-vekur mann kl.7.00 á SLAGINU og KREFST þess að ég raði í mig morgunmat...og við erum ekkert að tala um venjulega skammta hér!
-hlustar ekkert á það þegar maður segist vera saddur...hún krefst þess að ég borði...sofandi eður ei!!!! Já takk fyrir...annars bara vítiskvalir og garnagaul í dolby stereo!
-lætur mann grenja yfir ÖLLU...allt frá því hvort Diet-Coke-ið er búið yfir í alvöru drama...eins og að fjarstýringin hafi dottið á gólfið (sko...það er EKKERT grííííín að beygja sig eftir henn í þessu ásigkomulagi!!!)
-lætur mann þurfa að drekka sjöhundruð lítra á dag af vökva...skil ekki af hverju ég get ekki bara fengið vökva í æð hérna heima. Ykkur grunar ekki hvað fer mikill tími í þessa stanslausu vatnsdrykkju mína! Þyrst þyrst þyrst!
-dettur í hug að tilkynna komu sína í MIÐJUM PRÓFUM ...ég meina...hver gerir svoleiðis???

En mikið óskaplega elska ég þessa veru orðið mikið ...3 vikur...
foxí
-Bryndís Singapore-félagi droppar óvænt við á föstudagskvöldi í hláturskast og Latte
-Inga Löt hringir í þig og hún er óvart stödd í Hafnafirði en EKKI KÖBEN (þangað sem hún ákvað að flytja fyrir tveimur mánuðum en hætti svo við)
-Inga Löt droppar við í knús og spjall á sólríkum laugardegi
-þú liggur upp í sófa og litlu gríslingarnir þínir halda hverja skipulögðu sýninguna á fætur annarri fyrir þig (m.a. lagið Hey hey Ho Ho með bongó trommum og alles)
-þú vaknar við sólargeisla og gríslingaknús klukkan sex á laugardagsmorgni og þú missir þig EKKI í svefnleysisgeðvonsku heldur færð þér ristað brauð, lest blöðin og bara nýtur morgunsins með brosi á vör
-þú ferð í kvöldbíltúr með Lennon og gríslingunum og hlærð mestallan tímann
-þú notar hvert tækifæri til að veltast um og knúsa sætasta þinn á meðan þú plantar gríslingunum fyrir framan fjölvarpið (ég veit...svaka uppeldisfræðilegt)
-þú pirrar þig ekki yfir smáhlutunum
-þú byrjar laugardag á því að horfa á litlu prins-skessuna þína vera sætasta baunin í ballett-tíma (blákalt og hlutlaust mat móður)
-samviskubitið yfir lærdómsleysi er ekki að buga þig og þú nærð að njóta þess að vera aðeins behind schedule...vottðefokk
-hækkandi vextir á bílaláninu og yfirvofandi kreppa nær ekki að buga þig
-þú nærð að líta á það sem challenge að hætta þessu helvítis neyslufylleríi og læra að spara a la amma og afi
-öll fötin á nýjasta afleggjarann eru þvegin og reddí í skúffunni
-vaggan, kerran og vagninn er kominn í hús
-þú veist að litla krúttímús í bumbunni þinni fer að koma í heiminn

B-U-M-B-A

  • 30. Mar. 2008 at 10:29 PM
foxí










35 vikur búnar og litlu fötin í þurrkaranum...vhííííí

Rosalega...

  • 26. Mar. 2008 at 3:40 PM
foxí
geta fjórir dagar gert mikið. Lennon fór í fótboltaferð með strákunum á laugardaginn og kom heim í gær (þriðjudag). Þetta er náttúrulega ekki frásögu færandi nema...vá hvað ég saknaði hans. Og allir á heimilinu bara... Thalía læsti sig utan um hálsinn á honum eins og simpansi þegar hann kom heim og sleppti varla takinu þar til hún nauðug viljug þurfti að fara að sofa.

-Ein með fiðrildi (og prinsessu) í mallakút


Læt nokkrar myndir fylgja með...reyndar gamlar en lýsa þó ástandinu ágætlega...






Að hugsa sér...bráðum verður fjórði vitleysingurinn búinn að bætast við kapphlaupið mikla um knús! Heisus og allir hans lærisveinar!!!!

Profile

foxí
[info]brynkan
brynkan

Advertisement

Latest Month

Júlí 2009
S M T W T F S
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293031 

Page Summary

Syndicate

RSS Atom